Einn af mælikvörðum geðheilsu í samfélaginu

Átak Áskorunum safnað á 39.is.
Átak Áskorunum safnað á 39.is. mbl.is/Hallur Már

Blað Geðhjálpar kemur út í dag. Á forsíðu þess er talan 39, sem stendur fyrir þann fjölda Íslendinga sem féllu fyrir eigin hendi á síðasta ári.

Geðhjálp og Píeta samtökin hafa opnað síðuna 39.is, að því er fram kemur í Morgublaðinu í dag.

Þar er hægt að skrifa undir áskorun um að setja geðheilsu í forgang í samfélaginu. „Við vitum að fleiri manneskjur taka líf sitt á þessu ári,“ segir m.a. í aðsendri grein í blaðinu í dag frá Geðhjálp og Píeta.

Í fréttatilkynningu segir: „Sjálfsvíg eru einn af mælikvörðum geðheilsu í samfélaginu á hverjum tíma. Þau eru endapunktur og óafturkræf. Árið 2019 tóku 39 Íslendingar líf sitt. Tilgangurinn með því að birta tölu sjálfsvíga á Íslandi á síðasta ári er fyrst og fremst að beina sjónum að orsakaþáttum geðheilbrigðis. Þannig má auka umræðu um geðheilsu og orsakaþætti hennar og með því stuðla að framförum. Sjálfsvíg eru staðreynd sem samfélög þurfa að lifa með en þeim á ekki að fylgja skömm og/eða afneitun. Skynsamlegra er að horfast í augu við þau, viðurkenna en reyna jafnframt að koma í veg fyrir þau og draga úr tíðni þeirra. Leiðin til þess er að bæta og rækta geðheilsu þjóðarinnar og gefa henni gaum.

Áhersla samfélagsins þegar kemur að geðheilsu hefur um langt árabil verið fyrst og fremst á einkenni, meðferð og endurhæfingu á þeim vanda sem kemur upp í stað þess að horfa til orsakaþátta. Þetta köllum við að vera fyrir neðan fossinn. Fyrir neðan fossinn fer fram meðferð og endurhæfing á einkennum og þar er vissulega víða pottur brotinn. Þar þarf að skoða hugmyndafræði, þvinganir og nauðung, fábreyttar aðferðir við meðferð, vannýtta heilsugæslu, vond kjör starfsmanna, mikla starfsmannaveltu, takmarkaða aðkomu notenda og aðstandenda, heftan aðgang að sálfræðimeðferð, einhæfni í nálgun sálfræðinga, gamaldags nálgun í aðstandendavinnu, takmörkuð búsetuúrræði og loks skort á virkniúrræðum og húsakost geðþjónustu á Íslandi.

Fyrir ofan fossinn eru hins vegar verndandi þættir geðheilbrigðis. Meðganga, frumbernska, barnæska, skólakerfið, árin á vinnumarkaði og ellin. Það að koma í veg fyrir hluta þeirra áfalla, sem einstaklingur verður fyrir á æviskeiði sínu og draga úr áhrifum þeirra, bætir geðheilsu. Þangað ættum við að færa áherslur okkar.“

Fólk með sjálfsvígshugsanir er minnt á Hjálparsíma Rauða krossins, 1717, og netspjallið. Einnig er hægt að leita til Píeta samtakanna og síminn opinn allan sólarhringinn og er 552-2218 og vefsíðan www.pieta.is.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert