Grunur um riðuveiki í Skagafirði

mbl.is/Sigurður Bogi

Sterkur grunur er um riðuveiki á Stóru-Ökrum 1 (Brekkukoti) í Akrahreppi í Skagafirði. Matvælastofnun hefur sett bann á allan flutning líffjár (sauð- og geitfjár) innan Tröllaskagahólfs til bráðabirgða þar til greining hefur verið staðfest.  

Fram kemur í tilkynningu að bóndinn hafði samband við  starfandi dýralækni sem tilkynnti héraðsdýralækni um kind með einkenni riðuveiki. Héraðsdýralæknir skoðaði kindina sem síðan var aflífuð, sýni tekin og send til Tilraunastöðvar Háskóla Íslands að Keldum. Bráðabirgðaniðurstöður liggja fyrir sem benda sterklega til að um riðuveiki sé að ræða en staðfesting mun liggja fyrir eftir helgi.

Búið er í Tröllaskagahólfi og á svæði þar sem ekki hefur greinst riða síðan árið 2000.  Á búinu er nú um 500 fullorðið fé auk um 300 lamba. 

Á meðan beðið er eftir staðfestingu vinnur héraðsdýralæknir að undirbúningi aðgerða og öflun faraldsfræðilegra upplýsinga.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert