Hópurinn var með virk smit

Heilbrigðisstarfsmenn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Heilbrigðisstarfsmenn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. mbl.is/Íris Jóhannsdóttir

Átján manna hópurinn sem greindist með kórónuveirusmit á landamærunum í fyrradag og kom frá Póllandi var með virk smit og því ekki með mótefni. 

Þetta staðfestir Jóhann K. Jóhannsson, upplýsingafulltrúi almannavarna.

Smitrakning er í fullum gangi og ekkert hefur enn komið upp varðandi fleiri smit hjá fólki sem var í samskiptum við hópinn.

Að sögn Jóhanns tekur einhverja daga fyrir smitrakningarteymið að ná utan um málið.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði á upplýsingafundi í gær að fólkið hafi verið á ferðalagi erlendis en að það sé búsett hér á landi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert