Spár gera ráð fyrir vestlægri átt á landinu í dag, 3-10 m/s og vætu með köflum fyrri hluta dags. Gengur í norðaustan 8-15 síðdegis og rofar til sunnan heiða, en rigning eða slydda um landið norðan- og austanvert. Hiti 1 til 7 stig.
Í athugasemd veðurfræðings segir að eftir hádegi sé búist við norðaustan strekkingi eða allhvössum vindi á heiða- og fjallvegum á norðan- og austanverðu landinu, og með fylgir slydda eða snjókoma með köflum og versnandi akstursskilyrði.