Ágreiningur um breytingu á gatnamótum

Tveir fyrri áfangar vegarins sem lagðir hafa verið á síðustu …
Tveir fyrri áfangar vegarins sem lagðir hafa verið á síðustu árum nýtast ekki til fulls fyrr en lokaáfanginn verður tekinn í notkun. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sú lausn á tengingu Arnarnesvegar við Breiðholtsbraut sem Vegagerðin telur að sátt sé um að vinna áfram kemur fulltrúa í skipulagsráði Kópavogs á óvart. Virðist vera ágreiningur um málið, bæði í Kópavogi og Reykjavík. Tillagan felur í sér að fallið verði frá fullbúnum mislægum gatnamótum og í staðinn verði ljósastýrð vegamót.

Tveir áfangar Arnarnesvegar, sem tengja á Kópavog og byggðirnar þar fyrir sunnan við Breiðholtsbraut til móts við Fellahverfi í Breiðholti, hafa verið lagðir og nær vegurinn nú frá Reykjanesbraut að Rjúpnavegi.

Tenging talin öryggisatriði

Þrýst hefur verið á um að verkinu verði lokið með lagningu vegar frá Rjúpnavegi að Breiðholtsbraut, 1,3 km leið, meðal annars af öryggisástæðum. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur lagt áherslu á mikilvægi vegarins fyrir neyðarakstur og lengi hefur verið áhugi í Kópavogi á þessari tengingu.

Tillaga að útfærslu vegamóta Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar samkvæmt Vegagerðinni.
Tillaga að útfærslu vegamóta Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar samkvæmt Vegagerðinni. Kort/mbl.is

Lúkning Arnarnesvegar rataði inn í samkomulag ríkisins og sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um skipulag og fjármögnun uppbyggingar í samgöngumálum og er eitt af forgangsmálunum á verkefnalista.

Upphaflega var miðað við full mislæg gatnamót við Breiðholtsbraut og féllst Skipulagsstofnun á niðurstöður umhverfismats með því fyrirkomulagi. Reykjavíkurborg tók hins vegar mislæg gatnamót út af aðalskipulagi sínu.

Unnið með báðum aðilum

Í tilkynningu Vegagerðarinnar um breytta útfærslu á gatnamótunum kemur fram að unnið hafi verið náið með sveitarfélögunum Kópavogi og Reykjavík við undirbúning vegarins. Hæðarmunur á milli Breiðholtsbrautar og aðliggjandi umhverfis takmarki hvaða lausnir komi til greina. Eitt af því sem leggja ber áherslu á við útfærslu framkvæmdarinnar er að hún samræmist eins og kostur er áætlunum beggja sveitarfélaga.

Umrædd tillaga felst í hringtorgi við Vatnsendahvarf, einni brú yfir Breiðholtsbraut fyrir akreinar og stíga og umferðarljósum á tengingu við Breiðholtsbraut.

Undirbúningur málsins og tillagan var kynnt á fundi skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkur. Þar létu fulltrúar þriggja af fjórum flokkum meirihlutans, Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata, bóka að tryggja þyrfti góðar tengingar fyrir gangandi og hjólandi milli sveitarfélaga, yfir áætlaðan Arnarnesveg. Samfelldur stígur þyrfti að liggja norðan og sunnan við veginn alla leið. Eins þyrfti viðbótarþverun á miðri leið, t.d. undirgöng sem fólk og dýr gætu nýtt.

Verri kostur

Júlíus Hafstein, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í skipulagsráði Kópavogs, segir að þessi nýja tillaga komi á óvart. Fyrir hafi legið þrjár tillögur. Hann segist ekki skilja af hverju Reykjavíkurborg vilji ekki breyta aðalskipulagi sínu svo hægt sé að koma þarna upp mislægum gatnamótum, eins og gert hafi verið ráð fyrir. Telur hann að sú tillaga sem nú liggur fyrir sé verri kostur og hægi verulega á umferðinni.

Tekur Júlíus fram að eftir sé að leggja þessa nýju tillögu fram í skipulagsráði Kópavogs og væntanlega einnig umhverfis- og samgöngunefnd. Þá segir hann nauðsynlegt að fá upplýsingar frá fagfólki um getu þessa mannvirkis til að taka við umferð.

Stefnt að útboði á næsta ári

Vegagerðin hyggst senda Skipulagsstofnun fyrirspurn um matsskyldu þrátt fyrir að framkvæmdin sé augljóslega umfangsminni en fyrri áform sem fengu blessun stofnunarinnar. Þá er stefnt að útboði á for- og verkhönnun á næstunni og útboði framkvæmdarinnar sjálfrar á næsta ári.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert