Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki haft uppi á manni sem framdi fyrir helgi vopnað rán á skyndibitastaðnum Chido í vesturbæ Reykjavíkur. Maðurinn ógnaði starfsfólki með eggvopni og komst undan á hlaupum.
Lögreglu grunar um hvern er að ræða en viðkomandi sprittaði sig í bak og fyrir áður en hann lét til skarar skríða.
Starfsmenn sluppu ómeiddir.