Telur dóminn réttmætan

Mette Yvonne Larsen, réttargæslumaður brotaþola í Mehamn-málinu, telur dóm í …
Mette Yvonne Larsen, réttargæslumaður brotaþola í Mehamn-málinu, telur dóm í Mehamn-máli réttan. Ljósmynd/Henrik Evertsson/Advokatbladet

„Þessi dómur er réttur, það er hafið yfir vafa og ég er sátt við niðurstöðuna,“ segir Mette Yvonne Larsen, réttargæslumaður brotaþola í Mehamn-málinu, í spjalli við mbl.is um 13 ára dóm yfir Gunnari Jóhanni Gunnarssyni í morgun.

„Elenu [Undeland, fyrrverandi kærustu Gísla Þórs] er létt yfir því sem hún telur einnig vera réttlátan dóm. Nú vonast hún bara til að geta lagt þetta hörmulega mál að baki sér, haldið áfram með líf sitt og einbeitt sér að börnunum sínum og sinni framtíð í Mehamn,“ segir Larsen.

Spámaður í sínu heimalandi

Réttargæslulögmaðurinn, sem gegndi því sama hlutverki gagnvart fórnarlömbum fjöldamorðingjans Anders Behring Breivik árið 2011, reyndist sannspá þegar hún spáði því í viðtali við mbl.is, eftir að ákæra í málinu var gefin út í janúar, að búast mætti við minnst 13 ára dómi í málinu, en eftir atvikum allt að 15 árum.

„Hann [Gunn­ar Jó­hann] seg­ir að um slys hafi verið að ræða sem mér þykir býsna erfitt að leggja trúnað á,“ sagði Lar­sen þá, „að kalla það slys þegar þú kem­ur heim til [hálf]bróður þíns, reiður út í hann og með hlaðið skot­vopn. Þá máttu ein­fald­lega reikna með því að eitt­hvað ger­ist. Þú kem­ur ekki með hlaðið skot­vopn ef þú ætl­ar ekki að gera neitt,“ sagði lögmaðurinn enn fremur við mbl.is í janúar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert