Alvarleg líkamsárás í Borgarnesi

Frá Borgarnesi hvar árásin var framin.
Frá Borgarnesi hvar árásin var framin.

Alvarleg líkamsárás átti sér stað í Borgarnesi á mánudag og voru bæði meintur árásarmaður og þolandi fluttir á sjúkrahús. Þar liggja þeir enn og er rannsókn málsins á afar viðkvæmu stigi, að sögn Jóns Sig­urðar Ólason­ar, yf­ir­lög­regluþjóns hjá lög­regl­unni á Vest­ur­landi.

Maðurinn sem varð fyrir árásinni er á sextugsaldri og hlaut hann alvarlega áverka. Meintur árásarmaður hlaut einnig alvarlega áverka og voru þeir því báðir fluttir á sjúkrahús. Þeir þurftu þó ekki á gjörgæslumeðferð að halda. 

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu enda rannsókn þess í fullum gangi, að sögn Jóns. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert