Búast megi við snjókomu á Hellisheiði og í Þrengslum í fyrramálið

Svona er umhorfs á Hellisheiði, séð úr vefmyndavél Vegagerðarinnar. Vegurinn …
Svona er umhorfs á Hellisheiði, séð úr vefmyndavél Vegagerðarinnar. Vegurinn þó laus við snjó, en það spáir snjókomu í nótt og í fyrramálið. Ljósmynd/Vegagerðin

Horfur eru á snjókomu snemma í nótt og í fyrramálið á Hellisheiði og í Þrengslum, að því er veðurfræðingur Vegagerðarinnar greinir frá.

Spáð er allhvössum og vaxandi vindi og þá má búast við því að það verði nokkuð blint, einkum snemma í fyrramálið, að því er segir í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert