Kröpp og djúp lægð nálgast

Kort/Veðurstofa Íslands

Þeir sem hyggja á ferðlög næstu daga ættu að fylgjast vel með veðurspám og færð að sögn veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Það er kannski skynsamlegast að fylgja tilmælum þríeykisins um að halda sig heima í vetrarfríinu. Von er á krappri og djúpri lægð á morgun.

„Í dag gengur í suðaustankalda með smá rigningu eða slyddu á sunnan- og vestanverðu landinu en mun hægara og bjartviðri norðaustan til. Á morgun nálgast kröpp og djúp lægð frá Nýfundnalandi. Hvessir þá úr austri og verður hvassast við suðuströndina, jafnvel staðbundinn stormur um kvöldið. Lítlisháttar væta víða um land en þurrt að kalla fyrir norðan. Áframhaldandi hvassir vindar og úrkomusamt fram á sunnudag þegar lægir loks og rofar til en fremur hlýtt miðað við árstíma,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands sem biður þá sem hyggja á ferðalög að huga að veðri og færð áður en lagt er af stað.

Veðurspá fyrir næstu daga

Gengur í suðaustan 8-15 m/s með dálítilli rigning eða slyddu S- og V-lands, hvassast á Snæfelssnesi en úrkomuminna með kvöldinu. Mun hægara og bjartviðri NA til. Hlýnar í veðri og hiti 1 til 6 stig síðdegis en nærri frostmarki NA-lands.

Vaxandi austanátt á morgun, 13-20 m/s síðdegis, hvassast syðst, en jafn vel staðbundinn stormur þar um kvöldið. Dálítil rigning víða um land, en þurrt að kalla fyrir norðan og hlýnar dálítið.

Á fimmtudag:
Gengur austan 13-20 m/s með rigningu á S-verðu landinu, hvassast syðst og jafn vel stormur þar um kvöldið. Hiti 1 til 6 stig. Hægara og þurrt fyrir norðan og hiti kringum frostmark.

Á föstudag:
Norðaustan 13-20 m/s, hvassast á Vestfjörðum með talsverðri rigningu S- og A-lands, en annars úrkomuminna. Hiti 1 til 7 stig, mildast syðst.

Á laugardag (fyrsti vetrardagur):
Útlit fyrir norðaustanhvassviðri, jafn vel storm með talsverðri rigningu á A-helming landsins, en annars úrkomuminna og milt í veðri.

Á sunnudag:
Stíf norðaustanátt NV-til, en annars mun hægari vindar. Væta í flestum landshlutum og fremur hlýtt í veðri.

Á mánudag:
Líklega hæg norðanátt með skúrum éljum, en úrkomulítið syðra og fremur svalt veður.

Á þriðjudag:
Líkur á vaxandi austanátt með rigningu og hlýnandi veðri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert