Djúpar lægðir næstu sex daga

Kort/Veðurstofa Íslands

Veðurspár gera ráð fyrir að djúpar lægðir verði tíðir gestir fyrir sunnan og suðaustan land næstu 6 daga og jafnvel lengur. Með lægðunum fylgir rigning eða slydda. Síðdegis í dag tekur gul viðvörun gildi á Suðurlandi en spáð er allt að 35 metrum á sekúndu.

„Austan- og norðaustanáttir verða þá ríkjandi hjá okkur og oft á tíðum hvasst, vonandi gefast þó einhverjir dagpartar með hægari vindi milli lægða. Með lægðunum fylgir rigning eða slydda og er útlit fyrir að mesta úrkoman verði á austanverðu landinu en í minna mæli vestanlands,“ segir meðal annars í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. 

Klukkan 16 tekur gul viðvörun gildi á Suðurlandi og gildir hún þangað til 5 í fyrramálið. Spáð er austan 18-23 m/s undir Eyjafjöllum og vindhviður staðbundið yfir 35 m/s. Varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind að því er segir á vef Veðurstofunnar.

Það sem af er október hefur vindur verið hægari á landinu en oftast er raunin á þessum árstíma. Margir hafa nýtt rólega daga undanfarið til að njóta útivistar í haustkyrrðinni segir veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands.

„Ef við snúum okkur nú að veðri dagsins, þá er vaxandi austanátt nú í morgunsárið og má búast við allhvössum vindi nokkuð víða þegar kemur fram á daginn og þegar líða fer að kvöldi slær væntanlega í storm syðst á landinu. Þó ber að taka fram að norðanlands verður vindur skaplegur í dag.

Í suðausturfjórðungi landsins verður lengst af rigning en í öðrum landshlutum verður úrkoma lítil, í mesta lagi dálítil rigning um tíma. Hitinn yfirleitt á bilinu 2 til 7 stig, en kaldara norðaustan til á landinu þangað til síðdegis.“

Veðurspá fyrir næstu daga

Gengur í austan 13-18 m/s í dag og 18-23 syðst undir kvöld, en hægari vindur norðanlands. Rigning eða slydda um landið suðaustanvert, annars úrkomulítið. Hiti 2 til 7 stig, en kaldara norðaustanlands þangað til síðdegis.

Austan 10-18 á morgun og víða rigning með köflum, talsverð úrkoma um tíma á Suðausturlandi og Austfjörðum. Hiti breytist lítið.

Á föstudag:
Austan 13-20 m/s. Rigning, talsverð á Suðausturlandi og Austfjörðum, en úrkomulítið á Norðvestur- og Vesturlandi. Dregur úr vindi seinnipartinn, fyrst syðst á landinu. Hiti 3 til 8 stig.

Á laugardag (fyrsti vetrardagur):
Norðaustan 15-23, hvassast á Vestfjörðum og í vindstrengjum suðaustanlands. Rigning eða slydda, en þurrt á Suður- og Vesturlandi. Hiti 2 til 8 stig, mildast syðst.

Á sunnudag:
Stíf norðaustanátt og víða rigning eða slydda, en þurrt suðvestan til á landinu. Hiti breytist lítið.

Á mánudag:
Norðaustlæg átt og dálítil slydda eða rigning á Norður- og Austurlandi, en bjartviðri sunnanlands. Hiti 0 til 6 stig.

Á þriðjudag og miðvikudag:
Austan- og norðaustanátt og rigning með köflum, en úrkomulítið vestanlands. Hiti 2 til 8 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert