Nafn mannsins sem lést í vinnuslysi

mbl.is

Maðurinn sem lést í vinnuslysi í malarnámu við Lambafell í fyrrinótt hét Jósef G Kristjánsson. Hann var fæddur þann 28. nóvember 1967.  Jósef hélt heimili sitt ásamt eftirlifandi unnustu sinni að Bifröst í Borgarfirði. Hann lætur eftir sig 9 börn á aldrinum frá 8 ára til 31 árs, barnabörn og forelda búsetta í Skagafirði.

Jósef G Kristjánsson
Jósef G Kristjánsson

Lögreglan greinir frá þessu á vefsíðu sinni.

Jósef lést þegar jarðýta sem hann ók féll fram af fjalls­brún.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert