Óskað eftir sýnum frá bændum í Tröllaskagahólfi

Vegna staðfestingar á riðusmiti í Tröllaskagahólfi óskar Matvælastofnun eftir því að sauðfjárbændur í hólfinu hafi samband við héraðsdýralækni vegna sýnatöku á fé sem misferst eða er slátrað heima. 

Þetta kemur fram á vef MAST.

Óskað er eftir sýnum úr:

  • fullorðnu fé sem slátrað er heima
  • fé sem drepst heima eða finnst dautt
  • fé sem aflífað er vegna sjúkdóma eða slysa

Tekið er fram, að sýnatakan sé bændum að kostnaðarlausu.

„Afar mikilvægt er að nú sé höndum tekið saman í því að rannsaka útbreiðslu smitsins í hólfinu hratt og örugglega,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert