Bíll valt í Reykjadal í nótt

Bíllinn valt norðan við Laugar í Reykjadal.
Bíllinn valt norðan við Laugar í Reykjadal. map.is

Fjórir voru fluttir á bráðamóttöku til skoðunar eftir bílveltu norðan við Laugar í Reykjadal í nótt. Þetta staðfestir lögreglan á Akureyri.

Bíllinn valt skömmu eftir miðnætti í nótt, aðfaranótt laugardags, en enginn slasaðist alvarlega í veltunni. Farþegarnir fjórir hlutu aðeins minniháttar meiðsli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert