Einn í öndunarvél

Frá Landspítalanum.
Frá Landspítalanum. Ljósmynd/Landspítali

Alls er 31 sjúklingur inniliggjandi á Landspítalnum vegna Covid-19. Þeir hafa verið 92 alls frá upphafi þriðju bylgju faraldursins. Þar af eru nú fjórir á gjörgæslu og er einn þeirra í öndunarvél.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá viðbragðsstjórn og farsóttanefnd Landspítalans.

Alls eru 1.089 sjúklingar í eftirliti Covid-19 göngudeildar, þar af 185 börn. 175 starfsmenn eru í sóttkví A og 26 starfsmenn eru í einangrun.

Einn sjúklingur hefur látist á Landspítala í þriðju bylgju faraldursins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert