Gestur Helga í sóttkví og breyting á þætti

Helgi Björnsson í blússandi gír.
Helgi Björnsson í blússandi gír. Ljósmynd Mummi Lú

Þátturinn heima með Helga sem er á dagskrá Sjónvarps Símans og á mbl.is klukkan 20:00 í kvöld verður með breyttu sniði vegna þess að gestur sem átti að koma fram í þætti kvöldsins er í sóttkví.

Beðist er velvirðingar á því að í fyrstu útgáfu fréttarinnar var greint frá því að Helgi Björns væri sjálfur í sóttkví ásamt hljóðfæraleikurum en samkvæmt upplýsingum frá Sjónvarpi Símans er svo ekki. 

Í kvöld verða sýnd valin myndskeið úr þáttunum hans Helga það sem af er ári. Einn aðalgesta þáttarins um helgina var sendur í sóttkví í morgun en hann hefur þó ekki sýnt nein einkenni.

„Fyrst og fremst vildum við fara að öllu með gát. Það er ekki ástæða til að óttast neitt en full ástæða til að fara varlega. Það kemur í ljós á næstu sólarhringum hvernig þetta þróast. Þangað til og eins og alltaf þá er bara að hlýða Víði,“ segir Helgi Björnsson í fréttatilkynningu.

„Við vorum búin að búa okkur undir að þessi staða gæti komið upp og við erum með viðbragðsáætlun sem var virkjuð núna um 11:30, nokkrum mínútum eftir að við fengum þessar fréttir,“ segir Pálmi Guðmundsson, dagskrárstjóri Sjónvarps Símans, í fréttatilkynningu.

Þátturinn verður því á réttum tíma en ólíkt lifandi útsendingu verða send brot af því besta með Helga og gestum hans það sem af er ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert