Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um ökumann á bifreið í Kópavogi í dag sem reyndi að aka niður vegfaranda.
Einnig var ökumaður stöðvaður við akstur í miðborginni og reyndist hann án ökuréttinda og bifreiðin ótryggð.
Samkvæmt dagbók lögreglu var einnig tilkynnt um innbrot í geymslur í Smárahverfinu.