Drangur var nýlega kominn úr slipp

Mikil fjárfesting liggur í skipinu sem sökk í höfninni á …
Mikil fjárfesting liggur í skipinu sem sökk í höfninni á Stöðvarfirði. Ljósmynd/Albert Kemp

Framkvæmdastjóri Aurora Seafood segir að mikil fjárfesting liggi í bátnum Drangi ÁR-307sem sökk í höfninni á Stöðvarfirði. Á þessu ári hafi miklu verið varið í bátinn til að gera hann færan til sæbjúgnaveiða. Þetta sé mikið högg fyrir fyrirtækið og komi ofan í erfiða markaði á heimsfaraldurstímum. 

„Skipið er nýlega komið úr slipp. Það er búið að setja óhemju fjármuni í að gera það hæft til sæbjúgnaveiða á þessu ári og því síðasta þegar við keyptum það. Það gerir þetta ennþá gremjulegra og erfiðara fyrir okkur. En við getum ekkert gert nema að horfa fram á veginn og koma öðru skipi á veiðar,“ segir Davíð Freyr Jónsson, framkvæmdastjóri Aurora Seafood.  

„Vertíðin er rúmlega hálfnuð og það er alveg ljóst að það er rosalega vont að missa atvinnutæki sem er í rekstri. Tala nú ekki um þegar markaðurinn er erfiður fyrir sjávarafurðir almennt,“ segir Davíð Freyr. 

Aflinn til matargerðar í Kína 

Hann segir að til þessa hafi gengið vel að selja sæbjúgun og hefur nær allur aflinn farið til Kína þar sem sæbjúgun er notuð til matargerðar. Undanfarin ár hefur fyrirtækið flutt út 5-6.000 tonn. Á þessu ári er kvótinn hins vegar um 2.000 tonn þar sem leyfilegur heildarafli hefur minnkað. 

Sæbjúgu.
Sæbjúgu. mbl.is/Albert Kemp

Níu skip hafa heimild til sæbjúgnaveiða á Íslandi. 

Drangur var sjósettur árið 1984 en að sögn Davíðs hefur mikið verið lagt í bátinn til að gera hann hæfan til sæbjúgnaveiða. „Það eru tugir milljóna sem hafa farið í skipið bara á þessu ári,“ segir Davíð. 

Skipið ónýtt 

Hann segir að fyrirtækið eigi annað skip en notkun þess var hætt 1. október þar sem heildaraflinn var mun minni en hann hefur verið. Næstu dagar muni hins vegar fara í það að hugsa um að koma Drangi úr höfninni. Hann segir ljóst að Drangur sé nær ónýtur. „Þetta eru gamlir togarar og verðmætin í svona skipum eru ekki mikil. Að endursmíða svona skip kostar rosalega mikið. Svona skip kosta einhverja tugi milljóna. Tryggingarfjárhæð á svona skipum er yfirleitt ekki svo há að það dekki alla þá fjárfestingu sem er í bátnum,“ segir Davíð Freyr. 

Aðgerðir voru í höfninni á Stöðvarfirði eftir að skipið sökk.
Aðgerðir voru í höfninni á Stöðvarfirði eftir að skipið sökk. Ljósmynd/Albert Kemp

Áhöfnin í skýrslutöku 

Áhöfnin mun fara í skýrslutöku hjá Rannsóknarnefnd sjóslysa. Að sögn Davíðs var samið við hafnarvörð um að fylgjast með því og nú verði farið í gegnum það hvernig menn skildu við skipið. Ekki er kominn tímarammi á það hvenær skipið verði dregið upp en málið er úr höndum fyrirtækisins þar til af því verður. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert