Hvetja til háttvísi á samfélagsmiðlum

Júlíus Geirmundsson.
Júlíus Geirmundsson.

Verkalýðsfélag Vestfirðinga sem hefur til meðferðar mál skipverja á Júlíusi Geirmundssyni ÍS-270 hefur birt tilkynningu á heimasíðu sinni þar sem hvatt er til háttvísi á samfélagsmiðlum í kjölfar ásakana á hendur hraðfrystihúsinu Gunnvöru vegna veikinda skipverja. 

„Málið er litið mjög alvarlegum augum hjá félaginu og verður unnið með hagsmuni félagsmanna að leiðarljósi. Hins vegar hefur mjög óvægin og oft á tíðum ósmekkleg umræða átt sér stað á samfélagsmiðlum. Staðreyndir málsins einar og sér eru alvarlegar, en það að kasta fram óábyrgum athugasemdum og fara í persónuárásir gerir málinu ekki gagn á neinn hátt og er frekar til þess fallið að leiða umræðuna frá staðreyndunum og skapa úlfúð í okkar samfélagi. Þess vegna óskar Verkalýðsfélag Vestfirðinga eftir því að við öll tjáum okkur með ábyrgum hætti og sýnum háttvísi.“ Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verk Vest, og Bergvin Eyþórsson varaformaður eru skráðir fyrir tilkynningunni. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert