Skátar nema land við Rauðavatn

Við Rauðavatn. Myndin sýnir hvernig byggingunum verður komið fyrir. Efst …
Við Rauðavatn. Myndin sýnir hvernig byggingunum verður komið fyrir. Efst á myndunum sjást byggingar Morgunblaðsins og miðla Árvakurs.

Hugmyndir að deiliskipulagi nýrrar skátamiðstöðvar við Hádegismóa norðan Rauðavatns eru til kynningar í borgarkerfinu.

Eins og fram kom í frétt í Morgunblaðinu í mars sl. fékk Bandalag íslenskra skáta vilyrði hjá Reykjavíkurborg fyrir lóð undir nýjar höfuðstöðvar við Hádegismóa 3. Lóðin er talin henta skátahreyfingunni afar vel til næstu áratuga.

„Skátahreyfingin er uppeldishreyfing sem stefnir að því að hver skáti læri smám saman á þroskaferli sínum frá barnsaldri til fullorðinsára að vera sjálfstæður, virkur, ábyrgur og að láta gott af sér leiða í samfélaginu,“ eins og segir í kynningu á skátastarfinu. 28 starfandi skátafélög eru í landinu með um 2.500 virka félaga. Höfuðstöðvar Bandalags íslenskra skáta eru nú við Hraunbæ í Reykjavík en þar er orðið þröngt um starfsemina.

Hið nýja svæði er við bakka Rauðavatns og jaðar Hólmsheiðar. Það er tæplega 24 þúsund fermetrar að stærð, hallar á móti suðri að vatninu og er hæðarmunur tæpir 10 metrar. Þetta eru talin mikilvæg svæði til útivistar og yfirlýst stefna borgarinnar að þróa þau áfram á þann hátt. Útivist, íþróttir og leikir eru þungamiðja skátastarfsins og því fellur sú starfsemi vel að markmiðum aðalskipulags á þessu svæði.

Svæðið tengist vel útivistarsvæðinu á Hólmsheiði, sem hefur átt auknum vinsældum að fagna. Í brekkunni við Rauðavatn hafa staðið sumarhús og gróðurinn myndar því ferköntuð form sem fylgja fyrrverandi lóðamörkum. Talsverður trjágróður er á svæðinu, aðallega víðir, greni og birki.

Þessi mynd sýnir lóðina eins og hún er í dag.
Þessi mynd sýnir lóðina eins og hún er í dag.

Gunnar Bergmann Stefánsson arkitekt hjá gb Design og Björn Jóhannsson, landslagsarkitekt hjá Urban Beat, hafa unnið hugmyndir að deiluskipulagi svæðisins. Byggingar og landslag eru útfærð samtímis

þannig að gróðurinn heldur sér að langmestu leyti og svæðið getur því nýst skátunum afar vel við leiki og störf og auðvelt verður að setja upp tjaldbúðir. Á myndinum hér að ofan sést vel hvernig arkitektarnir hafa látið landslagið og byggingarnar mynda eina samfellda heild.

Fimm byggingar á svæðinu

Gert er ráð fyrir fimm byggingum á svæðinu. Í aðalbyggingu verða höfuðstöðvar Bandalags íslenkra skáta. Þetta verður tveggja hæða hús, að hámarki 600 fermetrar. Þarna verða skrifstofur, kaffihús og verslun. Sunnar á svæðinu verða tveir svefnskálar fyrir 20 manns hvor, allt að 150 fermetrar. Skemma, allt að 300 fermetrar. Þar verður geymsla og ýmiss konar útivistarstarfsemi. Og loks fjölnotahús, allt að 200 fermetrar. Þarna verður eldhús, baðaðstaða ásamt fjölnotasal.

„Ný aðstaða breytir mjög miklu fyrir skáta. Nálægð við gróin útivistarsvæði gefur mikla möguleika og Skátaskólinn getur boðið upp á mjög fjölbreytta fræðslu. Aðstaðan mun einnig geta nýst fyrir útilegur og dagsferðir yngstu skáta,“ segir Marta Magnúsdóttir skátahöfðingi. Skátar sjái einnig fyrir sér að geta boðið skólabörnum í útinám á svæðinu til að upplifa ævintýri og tengsl við náttúruna og þjálfa félagsfærni þar sem skátar séu jú snillingar í slíkri dagskrá. Útilífsmiðstöðin skáta á Úlfljótsvatni, sem er opin öllum, sé í raun ekki svo langt frá Hádegismóum og það bjóði upp á marga möguleika. „Nálægð við náttúruna er skátastarfi alltaf til góða svo við vonum svo sannarlega að þetta gangi allt saman upp og við getum byggt látlaust og vistvænt í sátt við náttúruna á svæðinu,“ segir Marta.

Deiliskipulagstillaga er enn í vinnslu og eftir að skipulagshöfundar hennar hafa skilað henni inn verður hún lögð fyrir ráð borgarinnar til samþykktar, samkvæmt upplýsingum frá borginni. Staðfesti borgarráð tillöguna verður hún auglýst og þá tekur við hefðbundinn sex vikna tími þar sem tillagan verður formlega kynnt almenningi og hagsmunaaðilum.

Að þessu ferli loknu þurfa borgin og Bandalag íslenskra skáta að ganga til samninga um lóðina, segir Marta skáthöfðingi. Einnig er þá eftir að leysa húsnæðisþörf skátafélagsins í Árbænum. Engar framkvæmdir hefjast fyrr en búið er að hnýta alla hnúta. Uppbygging verður fjármögnuð með sölu á núverandi aðstöðu í Hraunbæ.

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 23. október. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert