„Það var enginn gleðskapur“

Víðir Reynisson á fundinum í morgun
Víðir Reynisson á fundinum í morgun Ljósmynd/Lögreglan

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra kannaði orðróm sem henni barst um að gleðskapur hefði verið hjá starfsfólki Landakots sem mögulega hefði valdið kórónuveirusmitinu sem þar kom upp.

Að sögn Víðis Reynissonar yfirlögregluþjóns var enginn gleðskapur og því var málið ekkert skoðað frekar.

„Það var enginn gleðskapur starfsmanna, Við könnuðum þennan orðróm sem okkur barst í gær og það eru engar upplýsingar um að um einhvern gleðskap starfsmanna hafi verið að ræða þarna,“ sagði Víðir á upplýsingafundi í morgun.

Vinna er haf­in við að safna upp­lýs­ing­um varðandi nán­ari grein­ingu á því hvernig at­b­urðarás­in fór af stað vegna smits­ins á Landa­koti, að því er Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, greindi frá á fundinum.

Sam­tals er um að ræða 27 starfs­menn og 52 sjúk­linga. Af þeim eru 32 á Landa­koti og 20 starfs­menn Land­spít­ala. Í sótt­kví eru um 270 starfs­menn, stærst­ur hluti vegna þessa smits. „Þetta hef­ur gríðarleg áhrif á starf­sem­ina, sér­stak­lega á Landa­koti,“ sagði Páll.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert