Verulega dregið úr skjálftavirkni

Ljósmynd/Veðurstofa Íslands

Verulega hefur dregið úr skjálftavirkninni á Reykjanesskaga síðustu daga. Um 180 skjálftar hafa mælst síðustu tvo sólarhringana og enginn skjálftanna hefur verið yfir 2,2 að stærð. Til samanburðar má nefna að fyrsta sólarhringinn eftir að skjálfti upp á 5,6 varð í Núpshlíðarhálsi mældust um 1.700 skjálftar á svæðinu.

Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands. 

Það er erfitt að fullyrða hvort hrinunni sé að ljúka eða að einungis hafi dregið tímabundið úr virkni,“ segir Einar Hjörleifsson, sérfræðingur á náttúruvárvakt Veðurstofunnar.

„Miðað við fjölda og stærð skjálfta síðustu daga er líklegt að virknin á svæðinu fari að nálgast það sem kölluð er eðlileg bakgrunnsvirkni. En eins og íbúar á Reykjanesskaganum þekkja þá hefur verið mikil skjálftavirkni á öllum skaganum þetta árið þar sem miðpunktur virkninnar hefur verið að færast á milli svæða. Þessi virkni er hluti af lengri atburðarás, en það er erfitt að spá fyrir um hvert framhaldið á henni verður,“ segir Einar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert