„Gerum allt sem í okkar valdi stendur“

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. mbl.is/Eggert

Á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun gerði Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, grein fyrir stöðu mála í Skagafirði vegna riðuveiki sem staðfest hefur verið í Tröllaskagahólfi.

Eins og greint hefur verið frá greindist riðuveiki á bænum Stóru-Ökrum 1 þann 22. október og hefur Matvælastofnun undanfarna daga kortlagt frekari útbreiðslu veikinnar.

„Þessar fréttir eru mikið reiðarslag,“ er haft eftir ráðherranum á vef stjórnarráðsins.

Fyrstu niðurstöður gefa til kynna að sterkur grunur er um …
Fyrstu niðurstöður gefa til kynna að sterkur grunur er um að riðuveiki sé til staðar í sauðfé á þremur búum. mbl.is/Árni Sæberg

Skýr tilmæli gefin til ráðuneytisins

Hann hafi undanfarna daga fylgst náið með framvindu þessa máls. Ljóst sé að tjónið sé mikið og tilfinnanlegt.

„Unnið er að því að átta sig á umfangi riðuveikinnar og er Matvælastofnun nú að kortleggja mögulega útbreiðslu. Ég hef gefið út skýr fyrirmæli til ráðuneytisins og Matvælastofnunar um að við gerum allt sem í okkar valdi stendur til að styðja við bændur á svæðinu í gegnum þetta áfall,“ segir Kristján Þór.

Vísbendingar um umtalsverðan fjölda

Fyrstu niðurstöður gefa til kynna að sterkur grunur er um að riðuveiki sé til staðar í sauðfé á þremur búum en endanleg niðurstaða liggur ekki fyrir. Ekki hefur greinst riðuveiki á þessu svæði í Tröllaskagahólfi frá árinu 2000.

Á vef stjórnarráðsins segir að ekki liggi fyrir heildarfjöldi gripa sem skera þurfi niður. Sterkar vísbendingar séu um að hann verði umtalsverður.

„Í ljósi þess hefur Matvælastofnun óskað eftir að Umhverfisstofnun liðsinni stofnuninni um lausnir við förgun. Þá liggur fyrir að kostnaður ráðuneytisins vegna málsins mun verða töluverður en ríkið mun greiða bætur og kostnað vegna riðuveikinnar til eigenda búfjár þar sem niðurskurður er nauðsynlegur.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert