Hafi samband við lögreglu vegna smits á Akureyri

Frá Akureyri.
Frá Akureyri. mbl.is/Sigurður Bogi

Lögreglan á Norðurlandi eystra vinnur að smitrakningu á Akureyri vegna kórónuveirusmits sem kom upp í gær. Smitið tengist veitingastaðnum Berlín sem er á Akureyri.

Þetta kemur fram í færslu lögreglunnar á Facebook.

Lögreglan óskar eftir því að allir sem voru inni á staðnum síðastliðinn laugardag, 25. október, milli 11:00 og 14:00 hafi samband við lögreglu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert