Menntasamstarf Norrænu ráðherranefndarinnar

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra kynnti í dag fyrstu greinargerðina um menntasamstarf Norrænu ráðherranefndarinnar um lýðræði, öryggi og nám án aðgreiningar. Skýrslan fjallar um aðgerðir og árangur Norrænu ráðherranefndarinnar sem miða að því að bregðast við samfélagslegum áskorunum með lýðræðislegum hætti, efla lýðræðisvitund ungs fólks og koma í veg fyrir jaðarsetningu, mismunun og öfgahyggju.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.

„Efling lýðræðis, öryggis og menntun án aðgreiningar hafa verið í forgrunni í norrænu samstarfi um árabil og þar hefur margt áunnist, ekki síst þegar kemur að miðlun þekkingar, sameiginlegri færniþróun á norrænum vettvangi og sameiginlegum námsgöngum. Þá er samstarf okkar einnig mikilvægt þegar kemur að því að uppfæra stefnur, aðgerðir og rannsóknir á þessum sviðum,“ er haft eftir Lilju.

Þá kynnti ráðherra einnig greinargerð um norrænt tungumálasamstarf og eftirfylgni norrænu tungumálayfirlýsingarinnar. Fram kom að unnið er að nýrri samstarfsáætlun á því sviði sem taka mun gildi á næsta ári. Í framkvæmdaáætlun ráðherranefndarinnar árin 2021-2024 eru meðal annars sérstakar aðgerðir til að auka þekkingu barna og ungmenna á menningu og tungumálum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert