Öllum innlögnum frestað vegna smita

mbl.is/Heiðar Kristjánsson

Öllum innlögnum á Vog hefur verið frestað eftir að sjúklingur þar greindist með Covid-19. Einn starfsmaður hefur einnig greinst með smit. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sjúkrahúsinu Vogi.

Eitt Covid-19-smit greindist hjá sjúklingi á sjúkrahúsinu Vogi 24. október og fór viðkomandi strax í einangrun og 17 aðrir sem voru á sömu deild eða útsettir á annan hátt voru sendir í sóttkví. Þrír starfsmenn fóru einnig í sóttkví. Þann 26. greindist starfsmaður smitaður af Covid-19 sem leiddi til þess að einn annar starfsmaður fór í sóttkví en engir sjúklingar. Aðgerðir eru unnar í samvinnu við rakningarteymið.

Öllum innlögnum á Vog hefur verið frestað frá 25.10. Dagana 27.-28.10 fara allir starfsmenn á Vogi/Vík og einnig allir inniliggjandi sjúklingar á Vogi í sýnatöku.

Ef allt kemur vel út úr þeirri skimun treystum við okkur til að taka við nýjum innlögnum á Vog, segir Einar Hermannsson, formaður SÁÁ, í tilkynningu en það verði í fyrsta lagi á fimmtudag, 29. október.

„Við hörmum að þurfa að fresta innlögnum en efst í huga okkar núna er að tryggja velferð sjúklinga og starfsmanna og draga úr líkum á Covid-19-smiti eins og frekast er unnt,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert