Íslendingur aðstoðar Covid-sjúklinga í Jemen

Kolbrún Þorsteinsdóttir hjúkrunarfræðingur er stödd í Jemen.
Kolbrún Þorsteinsdóttir hjúkrunarfræðingur er stödd í Jemen. Ljósmynd/Rauði krossinn

Kolbrún Þorsteinsdóttir hjúkrunarfræðingur og sendifulltrúi Rauða krossins á Íslandi er að störfum á meðferðardeild fyrir einstaklinga sem veikjast af Covid19 í Aden í suðurhluta Jemen. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rauða krossinum.

Margar heilbrigðisstofnanir í Jemen hafa neyðst til að loka vegna viðvarandi átaka og skorts á sjúkragögnum. Þá á heilbrigðiskerfið þar í landi í erfiðleikum með að veita hundruðum þúsunda einstaklinga grunnþjónustu. Lífi þeirra er ógnað vegna læknanlegra sjúkdóma, vannæringar og stríðstengdra áverka.

„Skortur á rafmagni og eldsneyti og mikil verðbólga gerir það að verkum að matur, lyf og aðrar nauðsynjavörur eru of dýrar fyrir flesta íbúa landsins og gerir erfitt líf af völdum vopnaðra átaka enn erfiðara,“ segir í tilkynningunni. 

Hvergi fleiri látist af Covid hlutfallslega

Þar kemur fram að heilbrigðiskerfið í Jemen sé í molum eftir stríð. Hvergi hafa fleiri látist hlutfallslega af völdum veirunnar eftir afar erfiða fyrstu bylgju sjúkdómsins þar í landi.

„Meðferðardeildin sem Kolbrún starfar á er meðal annars útbúin 60 rúmum fyrir sjúklinga, röntgenherbergi, legudeildum, hágæslu, aðstöðu fyrir forgangsröðun sjúklinga og rannsóknarstofu. Nokkur tonn af sjúkragögnum og búnaði voru flutt á staðinn.“

Kolbrún hefur nú þegar hafið störf á deildinni og mun starfa þar fram í janúar. Áður hefur hún farið sem sendifulltrúi á vegum Rauða krossins til Cox´s Bazar í Bangladess í lok árs 2018. 

 „Með stuðningi utanríkisráðuneytisins og Mannvina Rauða krossins getur Rauði krossinn á Íslandi stutt við jemenska Rauða hálfmánann í aðgerðum sínum, bæði í baráttunni gegn Covid19 en einnig afleiðinga vopnaðra átaka sl. ára.“

Hér að neðan má sjá myndband frá móttöku hjálpargagnanna og af uppsetningu meðferðardeildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert