Rannsaka vél Icelandair sem lenti án heimildar

Vélin lenti án heimildar á Keflavíkurflugvelli eftir að flugstjórinn hafði …
Vélin lenti án heimildar á Keflavíkurflugvelli eftir að flugstjórinn hafði lýst yfir neyðarástandi vegna eldsneytisskorts. Vélin hafði þá hringsólað í sautján mínútur yfir lokuðum vellinum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsakar nú tvö tengd atvik sem upp komu á Keflavíkurflugvelli fyrir ári síðan, 28. október 2019. 

Snemma morguns rann bandarísk sjúkraflugvél út af flugbrautarenda og inn á öryggissvæði utan flugbrautarinnar. Flugvélin stöðvaðist að lokum við enda öryggissvæðisins. Á meðan unnið var að því að fjarlægja flugvélina var flugbrautinni, 01/19, lokað og þar með öllum flugvellinum þar sem öðrum flugbrautum hafði ekki verið haldið opnum um nóttina. Var vélum því beint til Akureyrar.

Rannsókn þessa máls beinist að hálkuvörnum á Keflavíkurflugvelli, en í stöðuskýrslu rannsóknarnefndarinnar segir að lokadrög skýrslunnar séu í umsögn. RÚV greinir fyrst frá.

Hringsólaði í 17 mínútur

Klukkan 06:04 þegar vellinum var lokað var flugvél Icelandair TF-ISF að nálgast Keflavíkurflugvöll á leið frá Seattle. Vélin fór því í svokallað biðflug nálægt Keflavíkurflugvelli. Sautján mínútum síðar lýsti flugstjóri vélarinnar yfir neyðarástandi og sagðist verða að lenda á lokuðu flugbrautinni, 01/19, vegna lágrar eldsneytisstöðu. Lenti vélin sex mínútum síðar án heimildar.

Í stöðuskýrslu rannsóknarnefndarinnar segir að rannsókn þess máls beinist meðal annars að eldsneytismálum Icelandair, undirbúningu flugsins, veðri, þjónustustigi Keflavíkurflugvallar, hálkuvarna á Keflavíkurflugvelli, viðbragðsgetu við opnun varaflugvalla, viðbragðsgetu við hálkuvarnir varaflugvalla sem og kerfislegra misbresta

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert