Senda út áminningu um heimaslátrun

Matvælastofnun minnir á reglur um heimaslátrun í tilkynningu.
Matvælastofnun minnir á reglur um heimaslátrun í tilkynningu. Ljósmynd/MAST

Óheimilt er að dreifa eða selja kjöt úr heimaslátrun til annarra. Matvælastofnun telur að efni séu til að benda á þetta, í ljósi umræðu undanfarið, að því er segir í tilkynningu frá stofnuninni.

Dýrum sem slátra eigi til að dreifa afurðum þeirra á markað skuli slátra í sláturhúsum með starfsleyfi. Bændum sé heimilt að slátra búfé sínu til eigin neyslu.

Geti borist með afurðum í fólk

„Bændur sem slátra eigin fé til eigin neyslu þurfa að huga vel að velferð dýra við aflífun og hreinlæti við meðferð sláturafurða. Sjúkdómsvaldandi örverur eins og listería, E. coli (STEC), salmonella og Clostridium geta borist með kjötafurðum í fólk,“ segir í tilkynningunni.

Þeir sem hafi hug á að starfrækja lítið sláturhús sem samþykkta starfsstöð fyrir sölu og dreifingu sláturafurða eru þá „hvattir til að kynna sér lög um matvælireglugerð um lítil matvælafyrirtæki og hefðbundin matvæli og styrki Matvælasjóðs. Starfsemin er háð starfsleyfi frá Matvælastofnun og fá framleiðendur dýraafurða úthlutað samþykkisnúmeri þegar leyfi er veitt“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert