WOW-húsið víkur fyrir stórhýsi

Katrínartún 12. Húsið er málað í litum WOW-flugfélagsins sem var …
Katrínartún 12. Húsið er málað í litum WOW-flugfélagsins sem var með höfuðstöðvarnar þar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Byggingafulltrúinn í Reykjavík hefur heimilað niðurrif á þremur húsum á svonefndum Höfðatorgsreit. Jafnframt hefur lóðarhafinn, Höfðatorg ehf., lagt fram fyrirspurn til borgarinnar um hvort heimilað verði að byggja átta hæða atvinnuhús á lóðinni að niðurrifi loknu.

Höfðatorgsreitur afmarkast af fjórum götum: Borgartúni, Katrínartúni (hét áður Höfðatún), Bríetartúni (áður Skúlagata) og Þórunnartúni (áður Skúlatún). Á árum áður voru á þessu svæði verslunar- og þjónustufyrirtæki í eldri húsum, sem urðu að víkja fyrir nýjum byggingum.

Þarna risu í staðinn fimm stórar byggingar. Tvær þær hæstu eru turninn á Höfðatorgi, 19 hæðir, og Fosshótel Reykjavík, stærsta hótel landsins, 16 hæðir. Þar eru 320 herbergi. Að auki eru á reitnum tvær skrifstofubyggingar og 12 hæða fjölbýlishús með 94 íbúðum. Í skrifstofubyggingunum er að finna fjölbreytta starfsemi, svo sem banka, landlækni, þjóðkirkjuna og mörg svið Reykjavíkurborgar.

Húsin þrjú, sem nú verða rifin, eru þau síðustu af eldri húsunum á reitnum sem enn standa. Þau eru í eigu Höfðatorgs ehf., að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert