Ákvarðanir „teknar í skjóli ráðherravalds“

Hanna Katrín Friðriksson þingflokksformaður Viðreisnar.
Hanna Katrín Friðriksson þingflokksformaður Viðreisnar. mbl.is/Arnþór

Þingmenn Viðreisnar hafa kallað eftir því að samtal um sóttvarnaaðgerðir færist inn í þingsal og telja það í raun neyðsilegt til að auka fyrirsjáanleika þeirra. Þá telur þingflokkurinn að ákvarðanir um aðgerðir hafi verið teknar í „skjóli ráðherravalds“ án aðkomu kjörinna fulltrúa á Alþingi.

Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar sendi forseta Alþingis bréf um málið í gær. Ríkisstjórnin kynnir nú hertar aðgerðir vegna kórónuveirufaraldursins. 

„Í ljósi þeirra fordæmalausu áskorana sem íslenskt samfélag glímir við vegna Covid-19 heimsfaraldurs hefur hæstvirtur heilbrigðisráðherra staðfest fyrirmæli landlæknis og tillögur sóttvarnalæknis og gefið út tíðar reglugerðir sem ýmist samræmast eða ganga gegn ráðgjöf landlæknisembættisins. Reglunum er ætlað að vernda líf og heilsu fólks en fyrirkomulagið við setningu þeirra vekur þó áleitnar spurningar um forsendur að baki þeim. Álitamálin snúa meðal annars að því hvort of skammt eða langt sé gengið varðandi einstakar ráðstafanir, hvort þær byggi á heildstæðu mati á áhrifum á lífsviðurværi og andlega heilsu fólks og hvort jafnræðis sé gætt við ákvörðun og beitingu þeirra,“ segir í bréfinu. 

„Brýnt“ að Alþingi geti sinnt eftirlitshlutverki

Þingflokkur Viðreisnar telur að þörf sé á opinni og gagnsærri umræðu um sóttvarnaráðstafanir til að varpa ljósi á forsendur þeirra og auka fyrirsjáanleika þeira. 

„Framangreind álitamál eru til staðar vegna þess að ákvarðanir um ráðstafanirnar hafa verið teknar í skjóli ráðherravalds án aðkomu og umræðu kjörinna fulltrúa á Alþingi. Umræða á Alþingi er nauðsynleg til að tryggja breiða sátt um þær reglur sem settar eru til verndar heilsu þjóðarinnar sem og áframhaldandi traust í garð stjórnvalda. Við aðstæður sem þessar er brýnt að Alþingi sé gert fært að sinna eftirlitshlutverki sínu. Það verður best gert með því að reglubundið samtal eigi sér stað á Alþingi með upplýsingagjöf af hálfu heilbrigðisráðherra.“

Af framangreindum orsökum óskar þingflokkur Viðreisnar eftir því að forseti Alþingis færi heilbrigðisráðherra formlega beiðni fyrir hönd þingsins um reglulega skýrslugjöf heilbrigðisráðherra meðan umrætt ástand varir.

Óskar þingflokkurinn jafnframt eftir því að sérstökum tíma af þingstörfum verði varið til umræðu um skýrslugjöfina. Í ljósi þess að daglega berast nýjar fréttir af samfélagslegum og einstaklingsbundnum áhrifum kórónuveirunnar og þar sem sóttvarnaráðstafanir eru tíðar og gilda yfirleitt til tveggja vikna að lágmarki, leggur þingflokkurinn til að skýrslugjöf og umræður fari fram annan hvern mánudag, frá öðrum mánudegi í nóvember og þar til þörfin á sérstökum ráðstöfunum er yfirstaðin.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert