Alaskareiturinn hverfisverndaður

Vinnubúðareitur Hringbrautarverkefnisins stendur þar sem gróðrarstöðin Alaska stóð á sínum …
Vinnubúðareitur Hringbrautarverkefnisins stendur þar sem gróðrarstöðin Alaska stóð á sínum tíma. Ljósmynd/Aðsend

Nýr Land­spít­ali ohf.,NLSH, gætir þess að allar trjáfellingar og lagfæringar séu með réttmætum hætti, en laga hefur þurft trjálundinn til sem er eins og vin í eyðimörk. Vinnubúðarreitur Hringbrautarverkefnisins er hverfisverndaður í samþykktu deiliskipulagi en hann stendur þar sem gróðrarstöðin Alaska stóð á sínum tíma.

Haft er samband og leitað heimilda hjá Garðyrkjustjóra Reykjavíkurborgar, en embættið hefur sýnt verkinu mikinn áhuga.

Einnig hefur verið leitað álits hjá skógarfræðingi og öðrum sérfróðum aðilum, að því er segir í tilkynningu.

Allt sé gert til þess að trjálundurinn fái að njóta sín til framtíðar og geti um leið nýst sem vinalundur, en ekki hvað síst til minningar um eitt af upphafsverkum garðyrkjureksturs í Reykjavík með opnum söluskála fyrir borgarbúa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert