Ferðamenn taldir á 24 stöðum

Hvítserkur. Ferðamenn sem leggja leið sína að honum verða taldir.
Hvítserkur. Ferðamenn sem leggja leið sína að honum verða taldir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Næsta vor verða komnir teljarar við gönguleiðir á 24 vinsælum ferðamannastöðum víða um land.

Nýju teljararnir gefa mikilvægar upplýsingar strax daginn eftir um álag á viðkomandi stað og eru þær einnig dýrmætar fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu á viðkomandi svæði um fjölda einstaklinga á ferðinni.

Um er að ræða samstarfsverkefni Ferðamálastofu og Umhverfisstofnunar og kostar hver nýr mælir um 600 þúsund krónur, að sögn Jakobs Rolfssonar á Ferðamálastofu.

Áður voru teljarar komnir upp í Dimmuborgum, austan og vestan Goðafoss, við Gullfoss, í þjóðgarðinum á Þingvöllum og í sumar var settur upp teljari við Geysi. Fyrsta áfanga verkefnisins lauk um miðjan október með uppsetningu á teljurum við Hvítserk, Dynjanda, Súgandisey, Saxhól, Hraunfossa og Seltún. Talning er byrjuð að skila sér af fjórum áfangastöðum og bætast Dynjandi og Súgandisey við á næstu dögum.

Annar áfangi hefst í byrjun nóvember og verða teljarar þá settir upp við Dettifoss, Stuðlagil, Jökulsárlón, Skaftafell, Fjaðrárgljúfur, Reynisfjöru og í Reykjadal. Áætlað er að þriðja áfanga ljúki svo næsta vor en þá verða settir upp teljarar við Fimmvörðuháls, Laugaveginn, Látrabjarg og Hveravelli. aij@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert