Innanlandssmit kórónuveiru að frádregnum hópsýkingum eru mælikvarði á virk samfélagssmit en þessum smitum hefur fækkað. Síðustu daga hefur daglegur fjöldi verið 13-28 einstaklingar. Þetta kemur fram í minnisblaði Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknir vegna hertra aðgerða í baráttu við kórónuveiruna en hann hefur áhyggjur af frekari hópsýkingum.
Þar kemur enn fremur fram að frá því að hertar aðgerðir tóku gildi 5. og 6. október hafi tvö stór hópsmit komið upp. Annað var á frystitogaranum Júlíusi Geirmundssyni frá Ísafirði og hitt á Landakoti.
Smitið á Landakoti hefur borist út til hjúkrunarheimilis á Eyrarbakka og á Reykjalund. Á þessari stundu er ekki séð fyrir endann á hópsýkingunni og ekki ljóst hvort hún muni dreifa sér víðar í samfélaginu.
„Vegna mikils fjölda innlagna COVID sjúklinga undanfarna daga þá hefur Landspítalinn lýst yfir neyðarstigi sem þýðir að spítalinn þurfi að virkjast að fullu leyti vegna COVID-19 og ráði ekki við verkefnið án utanaðkomandi aðstoðar. Ýmissi starfsemi hefur verið frestað og einnig hefur margvíslegri heilbrigðisstarfsemi utan spítalans verið frestað til 15. nóvember. Áhyggjuefni er því að með þetta mikið af samfélagslegu smiti í gangi muni á einhverjum tímapunkti á næstunni brjótast út hópsýkingar og valda enn meira álagi á heilbrigðiskerfið,“ kemur meðal annars fram í minnisblaði sóttvarnalæknis.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra vék frá tillögum Þórólfs um takmarkanir í einu atriði. Sóttvarnalæknir lagði til að 20 mættu koma saman við útfarir en í reglugerð ráðherra segir að 30 megi koma saman.