Hreyfiflæði og teygjur með Söndru D.

Í Hreyfingar-þætti dags­ins sýn­ir Sandra D. Árnadóttir hreyfiflæði-æfingar þar sem markmiðið er að auka jafnvægi, liðleika og hreyfifærni. Unnið með eigin líkamsþyngd. Farið yfir líkamsstöðu og tækni í hreyfiteygjum í góðu flæði. 

Næstu vik­ur taka mbl.is og Hreyfing hönd­um sam­an og koma með lík­ams­rækt­ina heim í stofu. Alls verða tíu þætt­ir sýnd­ir á mbl.is þar sem farið er yfir fjöl­breytt­ar æf­ing­ar sem hægt er að gera heima.

Nýir þættiur eru frum­sýnd­ir á mánu­dags-, miðviku­dags- og föstu­dags­morgn­um. Þjálf­ar­ar Hreyf­ing­ar leiða áhuga­sama í gegn­um fjöl­breytt­ar æf­ing­ar sem eru sér­stak­lega sam­sett­ar til að þjálfa helstu vöðva­hópa lík­am­ans, bæta vellíðan og auka þol.

Meðal æf­inga eru styrktaræf­ing­ar, jóga, dans, hug­leiðsla, teygj­ur, þolæf­ing­ar og píla­tes. Í fyrsta þætt­in­um sýn­di Anna Ei­ríks­dótt­ir rass- og lær­vöðvaæf­ing­ar. Þættirnir eru í boði Hreyfingar, Hleðslu og Flóridana hér á mbl.is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál