Smit í 5. bekk í Brekkuskóla á Akureyri

Brekkuskóli á Akureyri.
Brekkuskóli á Akureyri. mbl.is/Þorgeir

Staðfest hefur verið að barn í 5. bekk í Brekkuskóla á Akureyri er með Covid-19. Af þessum sökum, og á meðan smitrakning fer fram, eru allir nemendur árgangsins sem voru í skólanum miðvikudaginn 28. október komnir í sóttkví sem og kennarar 5. bekkjar sem höfðu verið í samskiptum við barnið.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akureyrarbæ. 

Þar segir, að  skólastjórnendur séu í nánu samstarfi við smitrakningarteymi um framhald málsins.

„Smitum fer fjölgandi á Akureyri. Afar mikilvægt að allir sýni ítrustu varúð og setji persónulegar sóttvarnir í algjöran forgang. Notum andlitsgrímur, sprittum og þvoum hendur vel, forðumst fjölmenni og virðum ávallt 2ja metra regluna. Ef vart verður flensulíkra einkenna sem gætu bent til Covid-19 smits, skal hafa samband við heilsugæsluna,“ segir ennfremur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert