Einn á slysadeild eftir árekstur

Sjö voru í bílunum tveimur.
Sjö voru í bílunum tveimur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Einn var fluttur á slysadeild eftir að tveir fólksbílar rákust saman á Arnarnesbrú um níuleytið í kvöld.

Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu voru meiðslin ekki mjög alvarleg og ekki þurfti klippur til að ná manninum út úr bílnum.

Alls voru sjö í bílunum tveimur.

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert