Lögreglan lýsir eftir Danielu

Síðast er vitað um ferðir Danielu á Laugavegi í Reykjavík, …
Síðast er vitað um ferðir Danielu á Laugavegi í Reykjavík, sl. miðvikudagskvöld. Ljósmynd/Lögreglan

Lögreglan á höfuðborgarsvæðingu lýsir eftir Danielu Hagiu. Daniela er 40 ára og frá Rúmeníu, um 160 sm á hæð með rauðbrúnt hár og blá augu. Hún er í svartri síðri úlpu með miklum loðkraga á.

Síðast er vitað um ferðir Danielu við heimili hennar á Laugavegi í Reykjavík, sl. miðvikudagskvöld. 

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Danielu eða vita hvar hún er niðurkomin eru vinsamlegast beðnir um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert