Henný Hinz formaður nefndar um gerð grænbókar

Henný Hinz.
Henný Hinz. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Nefnd um gerð grænbókar um kjarasamninga og vinnumarkaðsmál er ætlað að skila tillögum sínum til forsætisráðherra í lok apríl á næsta ári svo unnt verði að taka hana til umfjöllunar fyrir þinglok.

Í nefndinni, sem Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra skipaði nýverið, eiga sæti þau Henný Hinz, aðstoðarmaður ríkisstjórnar sem er jafnframt formaður nefndarinnar, Elín Blöndal, aðjúnkt við lagadeild Háskólans á Bifröst, og Vilhjálmur Egilsson hagfræðingur. Forsætisráðherra kynnti ríkisstjórninni minnisblað þessa efnis fyrir helgi, að því er fram kemur í frétt á vef Stjórnarráðsins.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra skipaði nefndina nýverið.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra skipaði nefndina nýverið. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Í yfirlýsingu um aðgerðir til stuðnings lífskjarasamningunum frá því í fyrra var fjallað um að stjórnvöld og heildarsamtök á vinnumarkaði myndu vinna að gerð grænbókar um framtíðarumhverfi kjarasamninga og vinnumarkaðsmála. 

Fjallað hefur verið um markmið og verklag við gerð grænbókar um kjarasamninga og vinnumarkaðsmál á samráðsfundum stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins og á vettvangi þjóðhagsráðs. Auk þess sem fram hafa farið samtöl við aðila vinnumarkaðarins um áherslur og væntingar til vinnunnar á undanförnum vikum.

Markmið verkefnisins er að kortleggja núverandi stöðu, varpa ljósi á reynsluna af núgildandi fyrirkomulagi og leggja fram skýrslu sem getur orðið grundvöllur að frekari umræðu og stefnumörkun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert