Krani féll á byggingu í Urriðaholti

mbl.is/SES

Byggingarkrani féll á byggingu við Mosagötu í Urriðaholti í Garðabæ nú fyrir skömmu. Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu er nýlega komið á staðinn. Ekki hafa borist tilkynningar um slys á fólki og hvorki lögregla né sjúkrabíll hafa verið kölluð til.

Um er að ræða nýbyggingu og eru engir íbúar í húsinu. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu er ekki vitað hvað gerðist og voru slökkviliðsmenn boðaðir á staðinn að beiðni Vinnueftirlitsins. Gaskútar eru á þaki byggingarnar og munu slökkviliðsmenn skoða aðstæður þess vegna. 

Að sögn vaktmanns slökkviliðsins hefur svona óhapp ekki verið á borði slökkviliðsins áður.

Krani fallinn í Mosagötu í Urriðaholti.
Krani fallinn í Mosagötu í Urriðaholti. Ljósmynd/Aðsend
Kraninnn liggur við jörðu.
Kraninnn liggur við jörðu. mbl.is/SES
Krani féll þegar verktakar voru við vinnu í byggingunni.
Krani féll þegar verktakar voru við vinnu í byggingunni. mbl.is/SES
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert