„Fatlað fólk er svelt til hlýðni“

Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ.
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður ÖBÍ.

Öryrkjabandalagið segist harma þá skelfilegu meðferð sem fatlað fólk hafi verið beitt á Arnarholti og að málið hafi verið þaggað í 50 ár. Mál sem þessi, þar sem sagt er frá illri meðferð fatlaðs og veiks fólks, séu þó hætt að koma á óvart. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bandalaginu.

Segir í tilkynningunni að í gegnum tíðina hafi verið litið á fatlað fólk sem byrði á þjóðfélaginu og því neitað um virðingu og mannréttindi. „Það er því mikilvægt, nú þegar hneykslunaraldan ríður yfir þjóðfélagið, að við stöldrum við og skoðum hvað hefur breyst. Hvað hefur breyst í okkar huga, í afstöðu okkar gagnvart fötluðu og langveiku fólki? Eru fordómar okkar jafn miklir nú og þeir hafa verið? Nú er rétti tíminn fyrir hvern og einn að líta í eigin barm og velta því fyrir sér. Því fordómar og vanþekking er uppspretta illrar meðferðar,“ segir í tilkynningunni.

Haft er eftir Þuríði Hörpu Sigurðardóttur, formanni Öryrkjabandalagsins, að stefna stjórnvalda sé enn að svelta fatlað fólk til hlýðni. „Það er gert nú með því að skammta nógu naumt fjármagn. Tölum bara hreint út, fatlað fólk er svelt til hlýðni, þegar örorkulífeyrir er svo naumt skammtaður að hann dugir ekki fyrir brýnustu nauðsynjum eins og húsaskjóli, mat og lyfjum, nema fram yfir miðjan mánuð, þegar  búið er að velta hverri krónu margsinnis fyrir sér,“ er haft eftir henni.

Segir í tilvitnun Þuríðar að þótt ekki sé stofnanavætt harðræði lengur sé það kerfislægt. Til að laga það þurfi að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert