Sammála mörgu en ósammála um meistarakerfið

Sigurður Hannesson.
Sigurður Hannesson. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Það er margt í þessari skýrslu og tillögum sem við getum tekið undir og passar vel við málflutning okkar síðustu misseri en við erum algerlega ósammála OECD um að meistarakerfið sé samkeppnishindrun,“ segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, um nýja skýrslu OECD um sam­keppn­ismat stofn­un­ar­inn­ar á ís­lenskri ferðaþjón­ustu og bygg­ing­ariðnaði, sem gerð var að beiðni stjórn­valda.

Skýrslan OECD var kynnt í gær en beðið var um hana fyrir tveimur árum. 

Í heild legg­ur OECD fram 438 til­lög­ur að breyt­ing­um á gild­andi lög­um og regl­um sem snúa að því að skýra bet­ur reglu­verk fyr­ir ferðaþjón­ustu og bygg­ing­ariðnað og að draga úr óþarfa reglu­byrði til að stuðla að auk­inni sam­keppni inn­an grein­anna.

Sigurður nefndi að margt sem komið hefði verið inn á í skýrslunni; gjaldtaka sveitarfélaga, skipulagsmál, útgáfa leyfa, tímafrestir og fleira, passaði vel við málflutning Samtaka iðnaðarins. 

„Auðvitað vonum við að sem mest af því verði hrint í framkvæmd þannig að það verði enn frekari umbætur á þessu sviði,“ segir Sigurður.

Það segir sig sjálft að gjaldtaka sveitarfélaga til dæmis hefur áhrif. Innviðagjöld geta numið milljónum á hverja íbúð og auðvitað þýðir það að verðið er hærra,“ segir Sigurður.

Annað eins og varðandi meistarakerfið segir Sigurður að SI geti ekki tekið undir.

„Við tókum höndum saman með menntamálaráðherra og sveitarfélögunum að hvetja til aukinnar aðsóknar í iðnnám og það hefur skilað árangri. Aðsókn hefur aukist ár frá ári. Með fleiri iðnmenntuðum ætti samkeppni að aukast en ekki minnka eins og OECD ýjar að,“ segir hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert