Af neyðarstigi yfir á hættustig

Ljósmynd/Landspítali/Þorkell Þorkelsson

Landspítalinn fer yfir á hættustig í dag en hann hefur verið á neyðarstigi síðan 25. október eða frá því hópsmit kom upp á Landakoti. Á annan tug sjúklinga hefur látist af völdum Covid-19 frá þeim tíma, flestir þeirra tengdust Landakotssmitinu. Landspítalinn hefur aldrei áður starfað á neyðarstigi.

Á vef Landspítalans segir að þetta byggi á því mati viðbragsstjórnar og farsóttanefndar að tök hafi náðst á faraldrinum sem upp kom á Landakoti og spítalinn sé í stakk búinn til að starfa á hættustigi.

Hættustig er skilgreint með eftirfarandi hætti: Orðinn atburður sem kallar á að starfað sé eftir viðbragðsáætlun. Fjöldi þolenda af þeirri stærðargráðu að aukið álag skapast á ýmsar deildir.

Áfram eru því í gildi allar takmarkanir og ýtrustu varúðarráðstafanir skv. gildandi reglum og leiðbeiningum um sýkingavarnir.

Í gær voru 66 sjúklingar inniliggjandi vegna Covid-19 á Landspítalanum, þar af 37 í einangrun. Alls hafa 165 sjúklingar legið á Landspítalanum vegna Covid-19 í upphafi þriðju bylgju faraldursins. Tveir sjúklingar voru á gjörgæslu í gær og báðir í öndunarvél.

Fjórtán andlát hafa orðið á Landspítala í þriðju bylgju faraldursins. 471 sjúklingur er í eftirliti Covid-19-göngudeildar, þar af 70 börn. 114 starfsmenn LSH eru skráðir í einangrun (41) eða sóttkví (A:23 B:27 C:23).

Hópsmitið á Landakoti hefur verið tilkynnt embætti landlæknis sem alvarlegt tilvik en upplýst verður nánar um málið á morgun, föstudag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert