Íslenskur karlmaður á sextugsaldri lést á sjúkrahúsi í borginni Petropavlovsk á Kamsjatka-skaga í Rússlandi í gær. Sveinn H. Guðmarsson, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins segir ekki mögulegt að veita upplýsingar um dánarorsök en Vísir fullyrðir að maðurinn hafi látist af völdum Covid-19.
Sveinn segir að borgaraþjónustunni sé kunnugt um andlátið og veiti aðstoð vegna þess með hefðbundnum hætti.