Hvaða breytingar taka gildi á miðnætti?

Hárgreiðslustofur opna á nýjan leik.
Hárgreiðslustofur opna á nýjan leik. mbl.is/Árni Sæberg

Tilslakanir á gildandi samkomutakmörkunum taka gildi núna á miðnætti. Hér verður farið yfir hverjar þær eru helstar.

Íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf barna í leik- og grunnskólum verður heimilt á nýjan leik.

Í framhaldsskólum verða fjöldamörk aukin í 25.

Hægt verður að hefja aftur ýmsa þjónustustarfsemi sem krefst snertingar eða mikillar nándar, svo lengi sem notast er við andlitsgrímur. Þetta á meðal annars við um hárgreiðslu- og nuddstofur.

Í gær var svo tilkynnt að börn í 5. – 7. bekk grunnskóla verða undanþegin grímuskyldu og tveggja metra nálægðartakmörkunum, líkt og yngri börn í grunnskóla og leikskólabörn.

Almennar fjöldatakmarkanir miðast áfram við tíu manns. Gert er ráð fyrir að hægt verði að draga enn frekar úr samkomutakmörkunum í byrjun desember.

Nánar um breytingarnar: 

  • Starfsemi og þjónusta sem krefst snertingar milli fólks verður leyfð með þeim skilyrðum að notast sé við andlitsgrímur. Þetta á við um s.s. hárgreiðslustofur, nuddstofur, öku- og flugkennslu og sambærilega starfsemi. Hámarksfjöldi viðskiptavina á sama tíma er 10 manns.
  • Æfingar, íþróttastarf, æskulýðs- og tómstundastarf barna á leik- og grunnskólaaldri verður heimilt jafnt inni og úti. Til að slíkt starf geti farið fram eru engar takmarkanir settar varðandi blöndun milli hópa. Fjöldamörk í hverju rými fara eftir reglugerð um takmarkanir á skólastarfi. Leikskólabörn og börn í 1.–4. bekk grunnskóla mega vera 50 saman að hámarki en nemendur í 5.–10. bekk að hámarki 25 saman.
  • Í skólastarfi á framhaldsskólastigi mega nemendur og starfsmenn vera að hámarki 25 í hverju rými í stað 10 áður en ber að nota andlitsgrímur sé ekki unnt að halda 2 metra fjarlægð.
  • Veitt er undanþágu frá grímuskyldu þeim sem ekki geta notað grímur, t.d. af heilsufarsástæðum eða ef viðkomandi skortir þroska eða skilning til að bera grímu. Þeir sem fengið hafa COVID-19 eru einnig undanþegnir grímuskyldu geti þeir sýnt gilt vottorð þess efnis.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert