Eyjamenn reka Herjólf til 2023

Herjólfur í brælu á útleið frá Eyjum.
Herjólfur í brælu á útleið frá Eyjum. mbl.is/Óskar Pétur Friðriksson

Samninganefndir Vestmannaeyjabæjar og Vegagerðarinnar vinna enn að gerð samnings um rekstur Herjólfs, á grundvelli ramma sem aðilar hafa orðið ásáttir um.

Þegar er orðið ljóst að Vestmannaeyjabær mun reka ferjuna næstu þrjú árin og ferðatíðni verður óbreytt. Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir að vonast sé til að samningsgerðinni ljúki á næstu dögum. Gert sé ráð fyrir samningi til ársins 2023.

Starfshópur var skipaður að ósk Vegagerðarinnar til að ræða kröfur Herjólfs ohf. um viðbótargreiðslur frá ríkinu vegna meiri mönnunar skipsins en gert var ráð fyrir í samningi, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í  dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert