Fá 50 þúsund króna eingreiðslu

Ásmundur Einar Daðason á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar í dag.
Ásmundur Einar Daðason á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Greidd verður út 50 þúsund króna eingreiðsla til þeirra örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega sem eiga rétt á lífeyri á árinu fyrir 18. desember, til viðbótar við desemberuppbót sem jafnframt kemur til greiðslu í desember.

Frá þessu greindi Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar í dag.

Tuttugu þúsund króna hækkun

Í tilkynningu frá Stjórnarráðinu segir enn fremur að í upphafi næsta árs verði gerðar varanlegar breytingar á örorkulífeyriskerfi almannatrygginga.

Dregið verður úr innbyrðis skerðingum, sem skili tekjulægstu örorkulífeyrisþegunum tæplega 8.000 króna viðbótarhækkun á mánuði, umfram fyrirhugaða hækkun upp á 3,6% sem gert var ráð fyrir í fjárlagafrumvarpi.

Heildarhækkun bóta almannatrygginga til tekjulægstu örorkulífeyrisþeganna verði því tæpar 20 þúsund krónur um áramót. 

Viðbragðshópur skipaður

Um leið verði ráðist í ýmsar mótvægisaðgerðir til að styrkja félagslega stöðu viðkvæmra hópa í heimsfaraldrinum og settur á laggirnar viðbragðshópur um fjárhagsstöðu heimila með fulltrúum frá fjármálastofnunum, hagsmunasamtökum og umboðsmanni skuldara. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert