Væri slæmt að missa tökin núna

Þórólfur Guðnason.
Þórólfur Guðnason.

„Mér finnst þetta líta ágætlega út. Það er gott að það séu bara tveir fyrir utan sóttkví, sem er mælikvarði á samfélagssmit. Sömuleiðis er jákvætt að allir þessir einstaklingar sem greindust eru með lögheimili á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir um fjölda smita í dag. 

Fimmtán kór­ónu­veiru­smit greind­ust inn­an­lands í gær. Átta greind­ust við ein­kenna­sýna­töku Íslenskr­ar erfðagrein­ing­ar og Land­spít­al­ans en sjö smit við sótt­kví­ar­sýna­töku. Þrett­án voru í sótt­kví við grein­ingu, eða tæp 87%.

Hafa rætt afléttingar

Fá smit hafa greinst hér á landi undanfarna daga og svo virðist sem faraldurinn sé í mikilli rénun. Aðspurður segir Þórólfur að aflétting ákveðinna takmarkana hafi komið til tals. Slíkt fari þó alfarið eftir því hvernig faraldurinn þróast næstu viku eða svo. 

„Það er reglugerð í gildi til 2. desember og við erum að skoða hvað tekur við þá. Það fer auðvitað eftir því hvernig þróunin á þessu verður. Það getur margt breyst, til dæmis getur orðið bakslag einn, tveir og þrír.“

Litakóðakerfi í undirbúningi

Nú er í undirbúningi litakóðakerfi sem gefa mun vísbendingu um hvaða reglur verða í gildi hverju sinni. Þá segir Þórólfur ljóst að takmarkanir verði áfram í gildi eða allt þar til gott bóluefni er komið í gagnið. Morgunblaðið greindi frá því í vikunni að það kunni að vera í janúar eða febrúar á næsta ári. 

Aðspurður segist hann ekki vilja nefna neina dagsetningu í því samhengi. Hins vegar verði áhersla lögð á að halda faraldrinum niðri þangað til. „Ég bind vonir við að þetta verði á fyrri hluta næsta árs. Ef það er snemma þá er það frábært. Við þurfum að halda faraldrinum niðri þangað til, við viljum ekki missa hann áður en bóluefnið kemur.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert