Allir í sóttkví við greiningu

Mynd úr safni frá sýnatöku í Utah.
Mynd úr safni frá sýnatöku í Utah. AFP

Alls greindust 5 kórónuveirusmit innanlands í gær og voru þeir allir í sóttkví. 205 eru í sóttkví og jafnmargir eru í einangrun. Í skimunarsóttkví eru 749.

Alls voru tekin 324 sýni innanlands í gær en 444 við landamærin.

Miðað við 100 þúsund íbúa eru 43,6 smit innanlands síðustu tvær vikurnar en 10,9 á landamærunum á sama tímabili. Þrjú virk smit greindust á landamærunum í gær en einn var með mótefni. Sjö bíða niðurstöðu mótefnamælingar.

33 börn með Covid

2 börn yngri en eins árs eru í ein­angr­un, 10 börn á aldr­in­um 1-5 ára eru í ein­angr­un og 16 börn 6-12 ára. 5 börn á aldr­in­um 13-17 ára er með Covid-19 í dag. Alls eru því 33 börn smituð af Covid-19 þessa stundina.

Í ald­urs­hópn­um 18-29 ára eru 29 smit, á fer­tugs­aldri eru smit­in nú 38 tals­ins en í ald­urs­hópn­um 40-49 er 31 smit. Á sex­tugs­aldri eru 36 með Covid og á sjö­tugs­aldri er 21smit. 9 eru með Covid á aldr­in­um 70-79 ára, 7 á níræðisaldri og 1 einstaklingur yfir nírætt eru með veiruna að því er fram kem­ur á covid.is.

Á höfuðborg­ar­svæðinu eru 158 í ein­angr­un og 148 er í sótt­kví. Á Suður­nesj­um eru 4 smitaðir en 3 í sótt­kví. Á Suður­landi eru 5 smit en 11 í sótt­kví. Á Austurlandi er eitt smit og og 2 í sóttkví. Á Norður­landi eystra eru 28 smit og 24 í sótt­kví. Á Norðvesturlandi eru 1 smit og enginn í sóttkví. Á Vest­fjörðum er 1 smit og 8 í sótt­kví og á Vest­ur­landi eru 11 smit og 8 í sótt­kví. Óstaðsett­ir í hús er 1 í sótt­kví.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert