Ásökunum um gluggagægjur vísað á bug

Lögreglan á höfuðborgasvæðinu telur að lögreglumenn hafi gætt meðalhófs í aðgerðum í Hafnarfirði á föstudag, en á meðal málsgagna eru upptökur úr búkmyndavélum lögreglumanna á vettvangi. Húsráðandi furðaði sig á gluggagægjum lögreglu.

Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að samskiptin við húsráðanda hafi verið tilkomin vegna tilkynninga sem bárust um fjölmennt unglingasamkvæmi.

Jafnframt var grunur um hugsanlegt brot á reglu um fjöldasamkomu, en við komu lögreglumanna á staðinn þótti sýnt að tilkynnendur hefðu eitthvað til síns máls. Áðurnefndur húsráðandi var lítt samvinnuþýður og hreytti fúkyrðum í lögreglumenn á vettvangi, en meðan á því stóð sáust um 20 ungmenni, öll grímulaus, yfirgefa húsið,“ segir í tilkynningu lögreglu.

Orðum húsráðanda á mbl.is um gluggagægjur lögreglunnar er alfarið vísað á bug en lögreglumenn horfðu í gegnum glugga á framhlið hússins til þess að telja ungmennin sem verið var að koma út í gegnum dyr baka til. 

Enn fremur bendir lögregla á að sóttvarnalæknir hafi sérstakar áhyggjur af hugsanlegum brotum á sóttvarnareglum. Aðgerðir lögreglu ættu því að koma fáum á óvart.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert